Ashville High School
Korfuboltafrettirnar
03.12.2007 20:53:43 / Axel

Gott mál

Jæja, um daginn fékk ég skemmtilega hugmynd þegar ég lá upp í rúmmi og gat ekki sofnað, oftast fer maður að hugsa um allt milli himins og jarðar eða það bara að reyna að einbeita sér að því að sofna. Ég fékk þá skemmtilegu hugmynd að taka að mér barn í fátækra landi og gerast fóstur foreldri eins og þetta er kallað. Þetta kom upp í huga minn nokkur kvöld og ég var alltaf ákveðinn í að gera þetta bara daginn eftir þar sem ég var lagstur niður og svona en aldrei varð neitt úr því (það þýðir ekki bara að tala eða hugsa um hlutina maður verður að framkvæma). Svo í gærkvöldi þegar ég lagðist upp í rúm fór ég að hugsa um þetta og sagði svo við sjálfan mig að ég myndi bara gera þetta á morgun en hugsaði svo að ef þetta ætti að gerast yrði ég að gera þetta strax. Ég fór fram úr rúminu og fann síðu sem ég var reyndar búinn að vera að skoða áður sem er síðan hjá Hjálparstarfi kirkjunnar(www.help.is). Þar fann ég símanúmerið sem ég tók niður og ákvað svo að hringja daginn eftir sem ég gerði. Konan spurði mig hvort ég vildi koma inn í Reykjavík og velja mér barn en ég vildi það ekki og þá sagði hún að hún væri með mynd af 11 ára Indverskum dreng á borðinu hjá sér og ákvað að styrkja greyið drenginn. Þetta er semsagt rétt yfir 2000kr á mánuði sem þarf að borga og ég gæti nú alveg eins týnt dósir upp af götunni fyrir þessu en ég ákvað bara að borga þetta einu sinni á ári sem er 1.jan og gera það þá í kringum 25.000kr sem samsvarar kanski 2-6 daga vinnu miðað við kaup og annað, en þetta kemur allt úr mínum vasa, ekki mömmu og pabba. Margir hugsa með sér hvernig ég tými þessu og allt það en það er ekki málið, það er það sem er á bakvið þetta. Fyrir þennan 25.000kr á ári fær strákurinn fæði, heilsugæslu, föt, húsaskjól og skólavist. Ég gæti alveg notað þennan pening sjálfur sem færi eflaust í mat, áfengi, eiturlyf, gleiðikonur og strippstaði svo eitthvað sé nefnt. Nei nei ég fer mjög vel með peninginn minn og það er alltaf ánægjulegt að geta látið gott af sér leiða. Hugmyndin að því að ég tók að gera eitthvað svona góðverk er bók sem heitir Samræður við Guð. Þarf að lesa hana aftur og kanski aftur til að skilja hana enn betur en þetta er mjög áhugaverð bók sem ég hvet alla til að lesa.

En ég fæ sendar myndir/mynd af stráknum í pósti og set þær eða hana hérna inná um leið og ég fæ hana. Þar sem ég vinn ekki allan ársins hring og er í skóla þá er þetta mjög hentugt fyrir mig því þarna er hægt að styrkja börn og unglinga fyrir meiri fjárhæðir en ég lét þetta nægja. Svo fór ég að hugsa um að ég væri nokkurnveginn að borga skólagönguna fyrir barnið á meðan ég og eflaust margir aðrir nenntu aldrei að sinna grunnskólanum hérn og hvað þá framhaldsnámi. En ef maður hugsar aðeins út í þetta þá erum við að fá þetta frítt eða mamma og pabbi borga eflaust námið hjá mörgum, maður verður að hafa fyrir þessu sjálfur svo að hægt sé að njóta þess og það er alveg sama hvað það er held ég. Sumir fá allt upp í hendurnar en aðrir vinna fyrir því og njóta þess þá væntanlega meira.

Annars líður mér bara mjög vel með það að vera orðinn fóstur pabbi 11 ára drengs í Indlandi og ég hvet bara alla til þess að gera þetta ef þeir hafa efni á því. Það er bara gott að geta gefið öðrum heilbrigt líf og ánægju. Flott að geta látið gott af sér leiða á einn eða annan hátt.

 

......


» 5 hafa sagt sína skoðun

20.10.2006 19:14:38 / Axel

----

 Er Þetta ekki full gróft



Maður verður samt að hlæja

-------

» 3 hafa sagt sína skoðun

19.10.2006 15:47:22 / Axel

Jahá

       Ég mæli með að allir checki á þessum trommara

       http://vids.myspace.com/index.cfm?fuseaction=vids.individual&videoid=1077910372  

» 0 hafa sagt sína skoðun

25.09.2006 19:30:53 / Axel

Komin tími á smá skrif

Já það er orðið langt síðan ég skrifaði eitthvað að viti hérna inn og ég held að það sé komin tími á það. Ég er búinn að vera edrú allar helgar og lítið að gerast nema að slaka á og reyna að fá sjónina almennilega aftur.

Um daginn fórum ég, Garðar og Palli með nokkrum í drauðaleiðangur. Við hittumst heima hjá Þóru miðil og við höfðum aldrei hitt hana áður og vorum þarna inní eldhúsi hjá henni og hún byrjaði að lesa okkur svona og vissi bara helling um okkur. Hún horfði aðeins á mig og spurði mig hvort að ég væri eitthvað meiddur eða amaði svona að mér, ég sagði bara já og þá sagði hún að hún tengdi þetta svo mikið við hausinn og ég sagði henni að það væri allveg rétt. Hún spurði mig hvort ég hefði lent í eitthverju slysi og ég játaði því og svo spurði hún hvort ég hafi dottið úr svoldið mikilli hæð og ég hélt ég yrði ekki eldri. Hún sagði mér bara eiginlega allt hvað gerðist og hvað væri að og hún sagði mér að þetta væri mjög alvarlegt og það þyrfti að fylgjast með þessu. Svo sagði hún mér að ég væri mjög næmur fyrir svona skyggnigáfum og ég vonaði bara að það myndi opnast þegar við fórum í leiðangurinn.

Við skelltum okkur svo í þennan leiðangur og byrjuðum uppá bergi þar sem að þar tók á móti okkur kona sem að var alltaf að biðja okkur um að elta sig því hún vildi sýna okkur hvar hún hafði farið fram af. Þóra sagði okkur að hún væri eitthvað um 36 ára og hafði farið þarna fram af fyrir 15-20 árum. En við nenntum ekki að labba alla þessa leið og við slepptum því að elta hana.

Næst fórum við í þetta fræga Írafár hús sem er í leirunni og þar var sjómaður sem að sagði við Þóru að við værum ekkert velkomin þarna í húsið og svo tók Garðar mynd af glugganum þar sem hann var og ég sá glitta í karlinn þarna á annari hæðinni. Við fórum inn og þarna var allt í gangi og Þóra heyrði í börnum gráta þarna í einu horninu og sagði að það hefði verið pynnt börn þarna í gamla daga. Svo var eitthvað af fólki í kjallaranum en það þorði engin þangað niður og engin þorði heldur að fara upp af því að sjómaðurinn var á efri hæðinni. Fólki leið ekkert vel þarna inni og við drifum okkur bara út.

Næst fórum við í kirkjugarðinn í Garðinum og Þóru var bent á eitthver leiði þar og ég nenni ekki að útskýra það allt saman. En Ívar sem að fyrir fór sér úr Garðinum var þarna með okkur og við skoðuðum leiðið hans og svona.

Næst var bræðslan í Sandgerði sem að er bara bull. Við skelltum okkur þarna inn og skoðuðum okkur um og Þóra sagði okkur að það hefðu 3 menn hengt sig þarna og benti inn í eina skemmuna. Við fórum svo inn í eina skemmu þarna á hliðinni og þar var gamal maður sem að var í kringum okkur og við ákváðum að fara öll í hrin og leiðast og reyna að fá manninn til að gefa frá sér hljóð af því að það var fólk þarna sem að sá né heyrði aldrei neitt. Við vorum þarna í hring og þá spurði Þóra manninn hvort hann gæti ekki gefið frá sér hljóð, þá heyrðum við öll að maðurinn labbaði út í horn á skemmunni og byrjaði svo að flauta. Þetta var geðveikt og allir 10 sem að voru í hringnum heyrðu þetta, svo var einn að taka upp og þetta náðist allt á cameruna. Við vorum svo á leiðinni út úr skemmunni og þá byrjuðu þvílik læti að koma út úr einni skemmunni og þá var það bara fullt af fólki að labba úr skemmunni.

Við ákváðum að fara bara heim til Þóru svo að halda smá miðils fund og hún las okkur flest öll þarna eins og opna bók og kom hellingur í ljós.

Við ætlum svo að taka allan hringinn seinna, fara þarna sem við fórum um daginn og kíkja svo á reykjanesvitann og Hafnirnar. Ég hef heyrt að það sé hellingur í gangi á reykjanesinu út af öllum sjóslysunum.

........................


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.09.2006 16:03:42 / Axel

Hlaupandi undan löggunni í æsku

Ég fann áðan mynband af Reggie Bush sem að spilar amerískan fótbolta. Ég held að hann hafi verið með þeim fljótustu í sögu háskóla fótbolta og í dag er hann nýliði í NFL og ég hef ekki hugmynd hvernig honum gengur en checkið á þessu og þetta er allt úr háskóla leikjum hjá honum

http://vids.myspace.com/index.cfm?fuseaction=vids.individual&videoid=754641746

......


» 2 hafa sagt sína skoðun

31.08.2006 23:53:29 / Axel

Læknirinn

 

--------------------------------

 

Ég veit nú ekki hvort ég eitthvað eftir þessari spánarferð

 

...............


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.08.2006 15:55:57 / Axel

Mössuð ferðasaga

Ferðin byrjaði heima hjá garðari um morguninn þegar við vorum þarna heima hjá honum allir hressir og orðnir vel í glasi og við skeltum okkur svo uppí flugstöð í kringum 12 minnir mig. Keyptum opal flösku og hún fuðraði upp þarna og það var keypt önnur og við orðnir gríðar hressir þarna og seinastir inn í vélina. Ég týndi einhverstaðar kortinu mínu inní stöð án þess að ég vissi af því og það kom einhver kona inn í vél og kallaði nafnið mitt og ég var sofandi en strákarnir tóku kortið mitt. Við þurftum svo að færa okkur aftur í vélina svo að hún myndi halda jafnvægi og ég veit ekki hvað það breytti að færa 3 stráka aftan í vélina. Ég stein svaf alla leiðina þangað til ég vaknaði þarna rétt fyrir lendingu og þurfti að æla, ég leitaði að ælu poka en það voru engir til þannig að ég stóð upp og þá voru bæði klósettin upptekinn þannig að ég ældi bara fyrir framan klósettinn á teppið og það fattaði aldrei neinn hver gerði þetta. Svo var bara komnir svartir rusla pokar yfir þetta þegar ég vaknaði svo aftur.

 

.

 

 

 

Allir fresh á þessum íslenska bar þarna

 

.

 

 

 

þessi mynd var tekin rétt fyrir slysið og ég veit ekkert hvaða gaur þetta var

 

.

 

 

 

Við mættum uppá hótel kl 9 um kvöldið og fórum bara beint út að kíkja á barina og checka á stemningunni, við enduðum svo á Jokers sem er einhver íslendinga skemmtistaður og ég var orðinn vel fullur þegar davíð rétti mér eitthvað glas þarna sem var 2faldur vodki í red-bull (köllum þetta klifurdrykinn) og það er ekkert sniðugt að blanda bjór og sterku víni saman en ég man bara eftir síðasta sopanum af þessu glasi og svo var það blackoutið, en það sem gerðist þarna var að ég og davíð fórum eitthvað að leita af garðari þarna á staðnum í kringum 3 leytið og fórum svo að klifra í eitthverjum trjám og það endaði með því að dyravörðurinn henti mér út fyrir það, ég ætlaði að finna garðar og fór þarna yfir girðingu við hliðina á staðnum og ætlaði að klifra uppá sólskýli / gróðurhús til þess að komast inná staðinn og finna garðar, það versta við þetta allt saman er að ég man ekki eftir neinu sem að skeði en ég allavega vissi að ég datt í gegnum þetta þak þarna og lenti einhvernveginn, held samt að ég hafi lent á hliðinni. Ég man svo bara næst eftir mér á einhverju hóteli að reyna að finna herbergið en þá var þetta band vitlaust hótel og svo man ég eftir að ég lagst á einhvern bekk þarna á ströndinni og sofnaði. Svo er ég vakinn upp þarna allur í blóði og hand ónýtur og það eru svona 15-20 manns sem að standa yfir mér og eru að horfa á mig og svo er búið að hringja á sjúkrabíl og ég dröslast inn í hann og beint upp á sjúkrahús. Ég man voða lítið eftir föstudeginum þarna á sjúkrahúsinu nema að ég var í eitthverju rúmi og það var alltaf verið að ýta mér um allt húsið í allskonar myndatökur og læti. Svo vakna ég held ég á laugardeginum þegar 2 heimsferða konur eru komnar þarna og eru að reyna að spurja mig hvað gerðist og þær sögðu að ég hafi verið laminn. Ég man ekki neitt sem skeði þannig að það var bara haft það þannig þangað til ég man það seinna á laugardeginum að ég var uppá einhverju svona gróðurhúsi. En ég var þarna á föstudagsnóttina og einhver snillingur skildi eftir opið svalahurðina og svo var kveikt á sjónvarpinu og allar helvítis flugurnar á benidorm komu inní herbergi til mín og mér var svo heitt að ég henti lakinu um nóttina og flugurnar átu upp á mér lappirnar. Ég hef aldrei verið bitinn jafn oft á sama stað. Ég var svo bara lokaður inná herbergi þangað til á manudeginum en strákarnir kíktu reglulega við þarna hjá mér skraufa þunnir og hressir. Ég náði svo að stela sjúkra sloppnum sem ég var í þarna á spítalanum og það er bara minjagripur.

 

.

 

 

Fallegt

 

.

 

 

 

 

Sloppurinn sem ég náði að ræna

 

.

 

 

 

 En á sunnueginum þá komu strákarni uppá sjúkrahús og sögðu við mig að það væri búið að hóta að reka þá útaf hótelinu af því að það var kastað einhverjum 5 glerflöskum útúr herberginu okkar og beint út á götu, og ég var ekki búinn að sjá þetta herbergi okkar áður en það var verið að fara að reka okkur útaf því. En þetta reddaðist og við / þeir fengu annan sjéns. Svo var hringt aftur á mánudeginum og það var ein konan frá heimsferðum og spurði hvort að þeir hafi verið að henda jógúrt dósum út af svölunum. Og það var alltaf lýst garðari í útliti þegar það var verið að segja hverjir voru að þessu.  En á mánudeginum kíktum við út og ég ákvað að drekka ekkert meira í ferðinni útaf þessu með sjúkrahúsið og ég var alltaf bara edrú gaurinn nema þegar að davíð veiktist þarna eftir að hann át einhverja salmon ellu samloku á einhverjum manchester bar. En garðar var fulli gaurinn í ferðinni og ég held að það hafi ekki runnið af honum alla ferðina, og það tók því ekki fyrir hann að panta þetta hótel því að hann gisti ekki eina nótt þarna. Hann mætti alltaf inn 8-9 á morgnanna þegar ég og davið vorum að vakna og þá var skellt sér í morgunmat. Ég kíkti á mánudeginum á þennan íslenska stað þarna Jokers og þá var ég bara þekktasti maðurinn á benidorm, það þekktu mig allir sem gaurinn sem að datt í gegnum gróðurhúsið og væri á spítala.  Svo á þriðjudeginu þá vorum við búnir að heyra að það væri alltaf eitthvað live sex show á Jokers og við kíktum á þetta eitt kvöldið og þá voru þetta par sem var bara með svona létt action uppá sviði, þetta var svo lélegt að það á varla að tala um þetta. En svo kom loksins að því að við sáum gömlu kerlinguna sem að er með show sem heitir Stincky Wincky minnir mig, málið er að hún er svona um 70tugt og er nakin uppá sviði og er að týna allskonar rusl úr klofinu á sér og opnar meðal annars glerflösku sem að hún lætur áhorfendur reyna að opna og svo er hún að stinga rakvélarblöðum og allskonar svona drasli og tekur svo út eitthvern blómvönd og við komum inn í miðja sýningu og við meikuðum ekki meira en 2 mín af þessum sora þarna.

 

.

 

 

Buweiser barinn og þjóninn

 

.

 

 

Við náðum að kíkja einn dag á ströndina og það var á miðvikudeginum og eftir hana kláruðum við bara að versla eitthvað þarna og svo ákváðu davíð og garðar að drekka ekkert útaf þvi að rútan  átti að fara daginn eftir kl hálf 7 og það endaði með að garðar var orðinn blind fullur þarna um nóttina þegar ég og davíð fórum heim að sofa og svo vöknum við kl 6 og þá er garðar ekki ennþá mættur uppá hótel, ég fer útá svalir og skoða aðeins mannlífið þarna og þá sé ég garðar vera læstan úti þarna niðri og við hendum lyklunum niður og hann kemur upp á herbergi syngjandi alla helstu manchester söngvana þarna og allt slagarar.

 

.

 

 

Draslið sem að gaf sig þegar ég var að labba á þessu

 

.

 

 

 

Svo lenti ég þarna

 

.

 

 

 

Fórum að skoða þetta eitt kvöldið og checka hvernig þetta leit út

 

.

 

 

 

Maður sá að þetta leit ekkert allt of vel út

 

.

 

 

 

 

.

 

 

 

 

 

 

Ein góð mynd hérna af gleraugunum sem ég reddaði mér, Stevie Wonder

 

.

 

 

 

 

.........................


» 4 hafa sagt sína skoðun

24.08.2006 23:52:25 / Axel

Gróðurhúsið - Vina Del Mar Apartamentozzzz

Það kemur ferðasaga yfir spánarferðina núna á morgun og svo myndir frá spítalanum sem að garðar ætlar að henda inn.

...


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.08.2006 13:58:48 / Axel

Maður Helgarinnar

-

Maaaðððuuuurrr eeerrr skeeemmmdduuur

Maður helgarinnar var hann Ómar bróðir Palla

..


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.07.2006 21:01:36 / Axel

Exodus NYC

Ég var að muna eina heimsíðu áðann og það eru gaurar sem að voru í Panama City í körfuboltamótinu þarna á ströndinni. Þeir taka þátt í troðslukeppnum og allt sem tengist hoppi enda rústuðu þeir þessari keppni þarna og voru að sjálfsögðu að hoppa hæst enda allir svartir.

Þarna eru þeir félagar í Panama eftir keppnina.


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.07.2006 00:27:42 / Axel

Turtles

Ég var að sjá þessa mynd áðann og þetta er hann Danny Yeager félagi minn sem á heima úti og það eru víst allir að metast á myspace heimasíðunni en fyrsta sem ég hugsaðu var Turtles


» 1 hafa sagt sína skoðun

25.06.2006 18:15:35 / Axel

.

-

 

Vel Gert

 

-


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.06.2006 13:52:44 / Axel

Sky is the Limit

Ég fattaði aldrei að ég var með svona fallegann suður-ríkja hreim fyrr en í gærkvöldi þegar ég var fyrir utan básinn og það kom einhver túristi og spurði mig hvar njarðvik væri á ensku, ég var þarna í góðum fíling bara og byrjaði að leiðbeina henni og ég heyrði í sjálfum mér með þennan redneck fagga hreim og strákarnir fóru bara að hlæja að mér. Ég er hættur að tala ensku


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.06.2006 07:22:43 / Axel

-

---------------------------------------------------------------------------------------

 

Fresh

 

.................


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.06.2006 01:31:19 / Axel

Gotti

Þá er seinni ferðin á enda, kem heim á miðvikudagsmorgunn og svo er það bara sama gamla góða lífið á klakanum held ég.

Ég veit ekki hvort ég haldi áfram með þessa síður þegar ég kem heim eða ekki, sjáum bara til.

..........


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5